Sýrutak

Eiginleikar:
Sýrutak leysir upp ýmsar útfellingar, s.s. kísl, kalk og ryð og einnig fitu og prótín.
Sýrutak vinnur vel á roðsvertu og rækjusvertu.
Sýrutak hentar vel til að fjarlægja ólífrænar útfellingar sem koma á færibönd, vélar og kassa og bakka í matvælaiðnaði ýmiskonar.
Sýrutak hentar vel til hreinsunar á ryði og einnig ryðlit sem getur komið á málaða fleti undan ryðguðum hlutum.
Sýrutak hentar vel til nota í háþrýstitæki og úðakúta.

Notkun:
Blöndunarhlutfall er mjög mismunandi eftir aðstæðum.
Sýrutak/Súr-X notast óþynnt við hreinsun á erfiðum kalk- og kíslútfellingum og ryðblettum.
Við regluleg þrif á færiböndum er 20-30% blöndu (17-26 dl í 10 l af vatni) úðað yfir og látið liggja á í 15 mínútur áður en þvegið er.
Við háþrýstiþvott á vélum og öðrum hlutum hentar að nota 3% blöndu.

Athugið:
Óþynnt og sterkar blöndur af Sýrutaki geta tært ál (og aðra mjúka málma) og steinsteypu.
Sýrutak á að meðhöndla af varúð og ekki án persónuhlífa.
Sýrutak má alls ekki komast í snertingu við klór eða klórblönduð efni.

Vörunúmer 161105 Umbúðir: 5 l brúsi
Vörunúmer 161120 Umbúðir: 20 l brúsi