C-11 Taulögur

Eiginleikar:
C-11 taulögur er kraftmikill og lágfreyðandi tauþvottalögur án ensíma, sem hentar vel í allan þvott.
C-11 taulögur hreinsar mjög vel en er jafnframt mildur fyrir þvottinn.
C-11 taulögur er mjög heppilegt þvottaefni í sjálfvirk skömmtunarkerfi í stórum þvottahúsum.
C-11 taulögur er notadrjúgur og hentar vel í öllum gerðum þvottavéla.
C-11 taulögur er án ofnæmisvaldandi efna og heppilegur m.t.t. ofnæmishættu.
C-11 taulögur þvær við öll þvottahitastig frá 30-90°C.

Notkun:
Notið um 7-20 ml af C-11 taulegi fyrir hvert kg. af þvotti eftir óhreinindum.
Við hreinsun á erfiðum blettum er mjög gott að úða C-11 taulegi á blettina fyrir þvott.

Vörunúmer: 111120 Umbúðir: 20 l brúsi